Lækningajurtir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Með því að smella á ljósmyndir af jurtum má sjá hana stærri.

Birki

Birki

Birki (Betula pubescens) er talið mjög vatnslosandi og er gjarnan notað við nýrnasjúkdómum. Það er vel þekkt gegn gigtarsjúkdómum, sérstaklega liða-, sóríasis- og þvagsýrugigt. Birki er talið blóðhreinsandi og mikið notað við húðsjúkdómum svo sem exemi og sóríasis ásamt því að vera græðandi útvortis fyrir sár og húðútbrot. Ferskt lífrænt birki er í tinktúrunum fíflablöð & birki og rauðsmári & gulmaðra og sáramyrsli.

Brenninetla

Brenninetla

Brenninetla (Urtica dioica) er vel þekkt sem vatnslosandi lækningajurt og góð gegn gigtarsjúkdómum. Hún er einnig talin hafa jákvæð áhrif á húðsjúkdóma, blóðleysi, ofnæmi, astma, ásamt því að auka brjóstamjólk. Brenninetla er talin góð gegn miklum tíðablæðingum. Bandarískar, þýskar og japanskar rannsóknir sýna fram á að brenninetlurót þykir einnig hafa virkni gegn góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Fersk lífræn brenninetlublöð eru í tinktúrunum maríustakkur & melissa og rauðsmári & gulmaðra. Lífræn brenninetlurót er í tinktúrunni hvönn & klóelfting.

Chillipipar

Chillipipar

Chillipipar (Capsicum minimum) er vel þekktur sem vörn gegn sýkingum. Hann hefur verið notaður við kvefi, hálsbólgu og sýkingum í meltingarvegi. Chillipipar er einnig talinn örva blóðrás og virkar því vel við hand- og fótkulda. Hann er einnig notaður til að draga úr vindgangi og magakrampa.Útvortis er Chillipipar notaður til að örva blóðflæði og er mikið notaður í gigtaráburði. Lífrænn chillipipar er í tinktúrunni sólhattur & hvönn.

Engifer

Engifer

Engiferrót (Zingiber officinalis) þykir ákaflega góð við hálsbólgu, kvefi, flensu, bronkítis og astma. Rótin hefur örvandi áhrif á blóðrás og er talin góð við hand- og fótkulda. Engiferrót er einnig talin draga úr ógleði til dæmis vegna bílveiki. Lífræn engiferrót er í tinktúrunni sólhattur & hvönn.

Fjallagrös

Fjallagrös

Fjallagrös (Cetraria islandica) hafa lengi þótt hin besta næring enda auðug af steinefnum og trefjum. Þau eru talin hafa góð áhrif á öndunarfærasjúkdóma svo sem kvef og astma. Fjallagrösin eru líka álitin örva meltingu og draga út bólgum í meltingarfærum. Útvortis eru fjallagrösin bæði mýkjandi og græðandi. Lífræn fjallagrös eru í tinktúrunni fíflarót og fjallagrös.

Garðablóðberg

Garðablóðberg og blóðberg

Garðablóðberg (Thymus vulgaris), öðru nafni timjan og íslenskt blóðberg (Thymus praecox) hafa sambærilega virkni. Báðar tegundir hafa öldum saman verið notaðar til að vinna bug á kvefi, hósta, hálsbólgu, astma og flensu. Blóðberg er einnig talið áhrifaríkt við magakveisum, vindgangi og uppþembu. Garðablóðberg er að auki talið vinna gegn sveppasýkingum, jafnt innvortis sem útvortis. Lífrænt garðablóðberg er í tinktúrunni sólhattur & hvönn.

Gulmaðra

Gulmaðra

Gulmaðra (Galum verum) er talin vatnslosandi og er notuð gegn þvagfærasýkingum, svo sem blöðrubólgu. Hún er álitin blóðhreinsandi og mikið notuð innvortis við bólum, exemi, sóríasis og bólgnum eitlum. Hún er einnig talin góð fyrir liða- og þvagsýrugigt. Fersk lífræn gulmaðra er í tinktúrunni rauðsmári & gulmaðra og fíflablöð & birki.


Haugarfi

Haugarfi

Haugarfi (Stellaria media) er ákaflega græðandi og mýkjandi útvortis fyrir sár, sprungur og útbrot. Hann er mikið notaður í græðandi smyrsl gegn hvers kyns húðútbrotum og sárum, enda kælandi og kláðastillandi. Ferskur lífrænn haugarfi er í sárasmyrsli, barnasmyrsli og mæðrasmyrsli.

Lakkrísrót

Lakkrísrót

Lakkrísrót (Glycyrrhiza glabra) hefur öldum saman verið notuð gegn öndunarfærasjúkdómum svo sem hósta og astma. Rótin þykir bólgueyðandi fyrir maga og ristil og er einnig vel þekkt fyrir hægðalosandi áhrif. Lífræn lakkrísrót er i tinktúrunni fjallagrös & fíflarót.

Kamilla

Kamilla og baldursbrá 

Kamilla (Matricaria recutita) hefur öldum saman verið notuð í grasalækningum. Íslenska baldursbráin (Martricaria maritima) er talin hafa sambærilega virkni og kamilla. Kamilla er talin róandi og er því notuð gegn stressi, kvíða og svefnleysi. Hún er mikið notuð við magakveisum og óróleika hjá börnum. Bolli af kamillutei eftir máltíð hjálpar til við meltinguna. Kamilla er einnig talin góð gegn kvefi. Löng hefð er fyrir því að nota kamillu í krem og smyrsl fyrir allar húðgerðir. Fersk lífræn baldursbrá er í maríustakkur & melissa og fjallagrös & fíflarót. Lífræn kamilla er í öllum hvítum kremum, barnasmyrsli og mæðrasmyrsli.


Klóelfting

Klóelflting (Equisetum arvense) er talin vatnslosandi og gjarnan notuð gegn blöðrubólgu og liðagigt. Hún er talin hafa jákvæð áhrif gegn góðkynja stækkun blöðruhálskirtils. Klóelfting er steinefnarík og er álitin örva hárvöxt, styrkja bein og neglur. Fersk lífræn klóelfting er í tinktúrunum hvönn & klóelfting og fíflablöð & birki.
Króklappa

Króklappa 

Króklappa (Arctium lappa) er talin hafa bakteríu- og vírusdrepandi áhrif ásamt því að vera vatnslosandi. Hún er þó einna þekktust fyrir jákvæð áhrif á húðsjúkdóma svo sem exem, sóríasis og bólur. Lífræn króklappa er í tinktúrunni rauðsmári & gulmaðra.

image1

Maríustakkur

Maríustakkur (Alchemilla vulgaris) er helsta íslenska lækningajurtin við kvensjúkdómum. Hann er notuð til að koma reglu á blæðingar, stemma blóðmissi í miklum blæðingum og gegn tíðaverkjum. Maríustakkur er einnig mikið notaður gegn svitaköstum og hitakófi á breytingaskeiði. Hann er talinn styrkjandi fyrir meltingarfæri og græðir sár, jafnt innvortis sem útvortis. Ferskur lífrænn maríustakkur er í tinktúrunni maríustakkur & melissa.

Mjaðjurt

Mjaðjurt

Mjaðjurt (Filipendula ulmaria) hefur græðandi áhrif á magaslímhúð, magabólgur og magasár og kemur jafnvægi á magasýrur. Hún er mikið notuð til að meðhöndla allar tegundir af gigt og þykir vatnslosandi. Mjaðjurt er einnig notuð gegn kvefi, flensu og hita. Útvortis er mjaðjurt mjög góð til að græða sár og útbrot. Fersk lífræn mjaðjurt er í tinktúrunni fíflablöð & birki og sárasmyrsli og mæðrasmyrsli.

Morgunfrú

Morgunfrú 

Morgunfrú (Calendula officinalis) er álitin bakteríu-, vírus- og sveppadrepandi. Hún er þó fyrst og fremst þekkt fyrir góð áhrif á húð. Morgunfrú hefur bólgueyðandi áhrif útvortis og er mikið notuð í sárasmyrsl og hvers konar húðkrem. Hún er hefðbundið notuð í húðvörur fyrir börn og þykir einstaklega góð á bleiuútbrot. Lífræn morgunfrú er í öllum hvítum kremum, barnasmyrsli og mæðrasmyrsli.

Rauðsmári

Rauðsmári

Rauðsmári (Trifolium pratense) hefur alla tíð verið mikið notaður við húðsjúkdómum svo sem exemi og sóríasis.  Hann hefur einnig gefið góða raun við hósta og er talinn hafa góð áhrif á kvilla tengdum breytingaskeiðinu. Ferskur lífrænn rauðmári er í tinktúrunni rauðsmári & gulmaðra.

Sítrónumelissa

Sítrónumelissa 

Sítrónumelissa (Melissa officinalis), öðru nafni hjartafró, er talin styrkja taugakerfið og draga úr kvíða, vægu þunglyndi, óróleika og pirringi. Hún er einnig notuð til að róa hraðan hjartslátt í tengslum við óstyrkar taugar. Sítrónumelissa er að auki mikið notuð við magakveisum tengdum kvíða og stressi, vindverkjum og uppþembu. Síðast en ekki síst er sítrónumelissan talin góð gegn ýmsum einkennum á breytingaskeiði kvenna og þá sérstaklega kvíða og vægu þunglyndi. Útvortis er sítrónumelissa talin góð gegn frunsum. Lífræn sítrónumelissa er í tinktúrunni maríustakkur & melissa.

Sólhattur

Sólhattur

Sólhattur (Echinacea angustifolia) er ein þekktasta lækningajurtin sem talin er styrkja ónæmiskerfið. Hún er mjög mikið notuð gegn kvefi og flensu, bæði fyrirbyggjandi og þegar einkenni eru til staðar. Sólhattur er einnig notaður gegn ýmiss konar bakteríu- og vírussýkingum. Lífrænn sólhattur er í tinktúrunni sólhattur & hvönn.

Túnfífill

Túnfífill

Túnfífill (Taraxicum officinalis) á sér ævagamla sögu sem lækningajurt en fíflablöð eru talin afar vatnslosandi og með hátt kalíumhlutfall. Fíflarótin er hinsvegar hreinsandi fyrir meltinguna og er gjarnan notuð við hægðatregðu. Rótin þykir einnig gagnleg við húðsjúkdómum. Fersk lífræn fíflablöð eru í tinktúrunni fíflablöð & birki. Lífræn fíflarót er í tinktúrunum fjallagrös & fíflarót og rauðsmári & gulmaðra.

Vallhumall

Vallhumall

Vallhumall (Achillea millefolium) er ákaflega fjölhæf lækningajurt sem á sér margra alda sögu í grasalækningum. Hann er talinn vatnslosandi og mikið notaður gegn gigtarsjúkdómum. Vallhumall er afar góður gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita. Hann er einnig notaður gegn tíðaverkjum og til að koma reglu á blæðingar. Vallhumall er talinn geta lækkað blóðþrýsting og hafa góð áhrif á bláæðakerfið. Einnig er Vallhumall mikið notaður útvortis til að græða sár og húðútbrot. Ferskur lífrænn vallhumall í tinktúrunum sólhattur & hvönn og maríustakkur & melissa. Lífrænn vallhumall er í öllum hvítum kremum og í sárasmyrsli.

Ætihvönn

Ætihvönn

Ætihvönn (Angelica archangelica) hefur í gegnum aldirnar verið notuð til að vinna bug á öndunarfærasjúkdómum, svo sem kvefi, hálsbólgu, flensu og astma. Hún er talin góð gegn góðkynja stækkun blöðruhálskirtils og gagnast vel gegn uppþembu, vindgangi og ólgu í meltingarvegi. Fersk lífræn ætihvönn er í tinktúrunum sólhattur & hvönn, fjallagrös & fíflarót og hvönn & klóelfting.

Ljósmyndir af brenninetlu, blóðbergi, gulmöðru, haugarfa, kamillu, klóelftingu, maríustakki, mjaðjurt, morgunfrú, rauðsmára, sólhatti, túnfífli, vallhumli og ætihvönn tók Gréta S. Guðjónsdóttir ljósmyndari.

 

© 2009 - 2011 Anna Rósa grasalæknir ehf. • Heilsuborg, Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • sími: 662 8328 • netfang: annarosa@annarosa.is

RocketTheme Joomla Templates