|
Nærandi dagkrem með lífrænum lækningajurtum fyrir venjulega eða viðkvæma húð. Hentar einnig sérstaklega vel fyrir þurra húð. Gengur vel inn í húðina og er því tilvalið undir farða.
Mýkir og ver gegn veðri og vindum.
Dagkremið innheldur vallhumal, morgunfrú , kamillu og lavender sem eru allar þekktar lækningajurtir fyrir húð.
Í mörg ár hef ég árangurslítið leitað logandi ljósi að kremi sem hentar mér. Eftir að ég fór að nota dagkremið frá Önnu Rósu vil ég ekki nota neitt annað. Kremið gengur vel inn í húðina, hefur græðandi áhrif og dregur úr ertingu í húð. Húðin verður silkimjúk og kremið er frábært undir meik.
Ingunn K. Sigurðardóttir, snyrtifræðingur
Ég hef viðkvæma andlitshúð og er gjörn á þurrkubletti. Dagkremið reyndist mjög vel á þurrkublettina og gekk hratt inn í húðina. Ég er mjög ánægð með það enda húðin mjúk og góð eftir notkun.
Ellen María Bergsveinsdóttir, hagfræðingur
Ég er með frekar þurra húð og hef oft verið í vandræðum með að finna krem sem hentar mér. Dagkremið frá Önnu Rósu grasalækni er með svo góðum raka að ég er háð því á morgnanna.
Helga Ósk Friðriksdóttir, matreiðslumeistari
Innihald
vatn (aqua), ólífuolía (olea europaea), vallhumall* (achillea millefolium), kamilla* (matricaria recutita), morgunfrú* (calendula officinalis), sheasmjör (bytyrospermum parkii)*, kakósmjör (theobroma cacao)*, cetosteryl alcohol, ethoxylated sorbitan ester, phenoxyethanol, benzyl alcohol, potassium sorbate, E vítamín (tocopherol), lavender (lavendula officinalis)* *lífrænt
|